B.T. verktakar ehf. er framsækið fyrirtæki á sviði hellulagna og almenns yfirborðsfrágangs
Fyrirtækið hefur um 20 ára skeið skapað sér gott orðspor meðal viðskipavina sinna en í hópi þeirra má finna jafnt húsfélög, verktaka , einkaaðila, ríki og borg. Þau verkefni sem við höfum tekið að okkur eru af öllum stærðum og gerðum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Stofnendur fyrirtækisins eru Baldur Freyr Gústafsson og Þórir Kr. Þórisson.
Við leggjum mikla áherslu á vönduð vinnubrögð, snyrtilegt vinnusvæði og besta fáanlega hráefni sem tryggir hámarks endingu og gæði.
Öllum okkar verkum fylgir 3 ára ábyrgð. Meðmælendur eru til staðar og einnig bendum við fólki að tala við birgja eins og BMvallá og Steypustöðina ehf.