Vélavinna

Margskonar vélavinna er fastur liður í yfirborðsframkvæmdum á lóðum

Vélavinna –  fyrir jarðvegsframkvæmdir og lóðafrágang 

Vélavinna er lykilatriði í jarðvegsframkvæmdum og yfirborðsfrágangi á lóðum. Við bjóðum upp á fjölbreytta vélavinnu, hvort sem um ræðir jarðvegsskipti, snjóbræðslu, hleðslur eða aðra jarðvinnu. 

Öflug tæki fyrir faglega vélavinnu 

Við notum JCB traktorsgröfu í flest verk en höfum einnig minni vélar og sérstakan búnað fyrir svæði þar sem stærri tæki eiga erfitt með að athafna sig. 

Búnaður í vélavinnu okkar:

  • JCB traktorsgröfur – fyrir stærri eða meðalstórar jarðvegsframkvæmdir
  • Mini-vélar og ausur/vélhjólbörur – fyrir þröng svæði og bakgarða
  • Jarðvegsþjöppur – til að tryggja stöðugt undirlag fyrir hellulagnir og snjóbræðslu 

Hvenær er vélavinna nauðsynleg? 

  • Jarðvegsskipti – þegar skipta þarf um óhentugan jarðveg
  • Snjóbræðslukerfi – þegar þarf að skafa umframefni af bílaplönum og undirbúa lagnir
  • Hleðslur og grjóthleðslur – gröfur notaðar til að koma sprengi- og holtagrjóti á sinn stað
  • Þjöppun jarðvegs – fyrir sandlagningu, hellulagnir og önnur yfirborðsverk 

Sérlausnir fyrir þröng svæði 

Ef aðkoma að lóð er erfið, til dæmis í bakgörðum, getum við notað mini-vél til graftar og ausu/vélhjólbörur til að flytja efni burt, sem tryggir skilvirka framkvæmd án óþarfa raskana.